Lífið

Una Torfa­dóttir með sína út­gáfu af Bubbalagi frá 1998

Stefán Árni Pálsson skrifar
Una fór með vel með lag Bubba Morthens.
Una fór með vel með lag Bubba Morthens. Stöð 2

Í síðasta þætti af Öll þessi ár á Stöð 2 var fjallað um árið 1998. Árið þar sem Keikó kom til landsins með eftirminnilegum hætti.

Í þáttunum fá þau Edda Andrésdóttir og Páll Magnússon til sín gesti sem tengdust atburðum eða fréttum valinna ára og kryfja málin í léttri sex þátta fréttatengdri mannlífs- og skemmtiþáttaseríu.

Undir lok þáttarins flutti söngkonan Una Torfadóttir lagið Jesús Pétur Kiljan og hin heilaga jómfrú og aumingja ég sem kom út árið 1998 og má finna á plötunni Arfur.

Virkilega falleg útgáfa eins og sjá má hér að neðan.

Klippa: Una Torfadóttir - Jesús Pétur Kiljan og hin heilaga jómfrú og aumingja ég





Fleiri fréttir

Sjá meira


×